Já halló
allir.
Lárus
heiti ég og er stofnandi þessarar síðu. Þetta er bloggsíða fyrir
hljómsveitina Revalation. Revalation var
stofnuð haustið 2006 af þeim Lárusi(Gítar/Píanó),
Önnu(söngur) og Jónasi(trommur). Eftir að
við vorum búin að stofna hljómsveitina þá fórum við að leita af
nafni. Það gekk ekki nógu vel eins og við bjugguðumst við.
Anna fór til Bandaríkjana og þá
fengum við hana Sigurð Daða(gítar) öðru nafni
Daði í bandið. Við Jónas og Daði
fórum að æfa lög sem við kunnum svona nokkuð vel, en það gekk
hálf brösulega fyrir sig.
Þegar líða leið á veturinn fengum
við hann Keith Reed til að hjálpa okkur að æfa
fyrir söngleik sem heitir á frumálinu Play
it Smart eða Með hamingjuna í
handarkrikanum. Við fengum í lið með okkur hann
Kristján Helga(gítar) eða öðru nafni Krissi. En
hann og Daði voru cute-aðir út úr
honum. Loks var frumsýningin á söngleiknum sem tóks
með stakri prýði. En hjá honum Krissa var ekki
allt að virka hjá honum þess vegna að hann hætti í
hljómsveitinni fyrir jól. Lárus,Daði og Jónas
spiluðu síðan í Laugalækjaskóla fyrir jól, enda er
hann Daði í Laugó...
19 Des kom hún Anna
heim frá Usa og við fórum að æfa að krafti. Anna
kom sterk inn í hljómsveitina með sínum fallega söng. Við fórum að
æfa lög sem við ætluðum að hafa á Herbalife
styrktartónleikum en ekkert varð úr því.


.
En núna er ég(Lárus) og
Jónas að semja söngleik sem fjallar um einelti.
Strákurinn hann Línus Gauti kemur nýr inní
Breiðholtsskóla og verður strítt út af því hvernig
hann lítur út. Söngleikurinn heitir Saga til næstu
borgar. Þessi söngleikur verður vonandi frumsýndur í
apríl-mai.
Svo er það aðaltónelikarnir núna hjá
okkur. Það eru rokktónleikar Kss sem verða 17 mars næstkomandi.
Þetta verður geðveikt show. Núna hugsa margir hvað þíðir Kss. Sumir
halda kannski Kristileg samtök samkynhneigðra. Kss þíðir Kristleg
skólasamtök og eru fyrir 10 bekk og framhaldskóla. En ef þú villt
koma þá er þetta á Laugardögum kl 20:30 að Holtavegi 28 á móti
Langholtsskóla.
En nóg í bili. ég kveð og vona að þú
komir þann 17 mars að sjá Revalation og fleiri
hljómsveitir.
Kv Lárus/Revalation!!!!